Icesave: Snilldarbrella Hallgríms

Allar kannast við það á lífsleiðinni að hitta fólk sem getur ómögulega innleitt hugmyndir, jafnvel ábatasamar fyrir það sjálft, nema það eigi þær sjálft. Lausn þeirra sem starfa með þessu fólki er að bíta á jaxlinn og búa svo um hnútana að viðkomandi haldi að hann eigi hugmyndina. Og setja svo innleiðinguna í gang. Allir hagnast og umræddur getur baðað sig í sviðsljósinu í smá tíma. Small price to pay.

Þetta kom upp í hugann þegar ég las góða grein Hallgríms Helgasonar um Icesave, hvers vegna málið er í þeim hnút sem það er og mögulega lausn málsins. Nákvæmlega allt í greininni hefur löngu verið lagt til og sumt af tillögunum eru meira  en árs gamlar og hafa verið í umræðunni svo mánuðum skiptir og margar þeirra má jafnvel finna hér á þessu bloggi og auðvitað víðar í samfélaginu.

Snilldin í grein Hallgríms er að hann er einmitt að láta líta út eins og Samfylkingin sé að fá þessar hugmyndir núna og þar sem sá flokkur er við völd þá er líklegra að þær verði að veruleika. Þetta er auðvitað ekki einskorðað við Samfylkingu heldur viðvarandi vandamál hjá fjórflokknum og á rætur að rekja til svokallaðrar sandkassapólitíkur þar sem línan er ekki hagsmunir Íslands heldur sérhagsmunir flokksins og næstu kosningar.

Þetta er því snilldarbrella hjá Hallgrími en endilega haldið þessu bloggi fyrir ykkur, lesendur góðir, því allar tillögurnar eru lyklar að lausn málsins og við viljum endilega að allir geti sameinast um þær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Skal gert. Þetta var og er ágæt grein hjá Hallgrími. Kannast sjálfur við ýmislegt. En segir samfylkingin ekki að það sé sama hvaða gott komi?

Kveðja að norðan

Arinbjörn Kúld, 17.1.2010 kl. 14:58

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Undirbúum greiðsluþrot - það styrkir okkar samingsaðstöðu gagnvart mótaðilum!

Við þurfum einhvern veginn, að framkalla svokallaðann "gamechanger".

<Virkjið hlekk á færslu - en hún er lengri en þetta>

Eina spilið er við höfum, er hótunin um greiðsluþrot.

Þetta er nákvæmlega sama spilið og gjaldþrota fyrirtæki spila, þegar þau semja við sína kröfuhafa, þ.e. þau setja fram áætlun um greiðslur. Slíkar vanalega miða við miklar afskriftir. Annars fái kröfuhafar ekkert eða mjög lítið.

Þ.s. ekki er hægt að gera Ísland upp, selja eignir þess, o.s.frv. - en reyndar getur Icesave samningur, talist tilraun til þess að gera slíkt mögulegt sbr. ábyrgðaákvæði þess samkomulags; þá væri okkar hótun mun beittari, þ.s. við raunverulega getum hótað því, að þeir fái ekki neitt.

Þá þurfum við að fara í undirbúning greiðsluþrots, og framkvæma þann undirbúninga allann fyrir opnum tjöldum.

Við þurfum, að breyta dínamíkinni í deilunni, koma mótaðilunum úr jafnvægi, þurrka glottið af vörum þeirra - þetta gæti verið einmitt leið til þess.

Ef, síðan allt bregts, þá verðum við greiðsluþrota, og undirbúningur þess, tekur gildi.

Sjá umfjöllun mína um greiðsluþrot og hverngi við förum að, auk líklegra afleiðinga þess:

 Ísland er gjaldþrota!

 

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.1.2010 kl. 15:00

3 identicon

Það er aulalegt að tala um "fjórflokk" eins og enginn munur sé á helstu stjórnmálaflokkum fjórum. Hvert mannsbarn sér stórmun, t.d. gagnvart útrásinni á sínum tíma.

Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 17.1.2010 kl. 15:34

4 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Takk fyrir að vekja athygli á þessu Egill. Einmitt það sama og ég hugsaði við lestur greinar Hallgríms. Þetta kom síðan skýrt fram í Silfri-Egils áðan. Sumir eiga greinilega mjög erfitt með að viðurkenna að margt af því sem gagnrýnendur stjórnarstefnunnar um Icesave hafa verið að segja allan tímann hafi verið rétt. Ástæðan er náttúrulega sú að þá verða þeir að viðurkenna að þeir hafi haft rangt fyrir sér allan tímann! Spunameistarar stjórnarinnar eru þannig farnir að spinna á fullu til ,,að eigna" sér rök andstæðinganna í þessu ógæfumáli. Grein Hallgríms, hirðskálds Baugs og Samfylkingarinnar, er liður í þessum spuna. 

Og það sem fer mest í taugarnar á þeim, og Hallgrímur skáld viðurkenndi í beinni útsendingu, er að þeir þurfi, eins ógeðfellt og það kann að vera, að skrifa upp á skoðanir Davíðs Oddssonar, Samfylkingarhrelli, í Icesave!

Jón Baldur Lorange, 17.1.2010 kl. 15:53

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Orðaleikir geta verið skemmtilegir og vakið margskonar viðbrögð. Greinin hans Hallgríms er þeirrar gerðar að vel er hægt að túka hana á marga vegu. Það er samt að mínu áliti ekki aðalatriðið, heldur hitt að mér finnst hann vera að fara með okkur í gegnum þann farsa sem búinn hefur verið til utanum þetta mál.

Þar hefur stjórnarandstaðan lengst af farið með leikstjórnina og það eru kannski stóru mistökin hjá ríkisstjórninni að heimila allan þennan spuna. En þar tel ég líka að munurinn liggi, í mismunandi stíl.

Samræðustjórnmál eru það sem við félagshyggjufólk leggjum áherslu á og þarna hafa átt sér stað miklar samræður. Það er líkast því að þingmenn gömlu stjórnarflokkanna, Sjálfstæðis og Framsóknarflokka hafi verið að sleppa úr áralangri innistöðu í fjósi Hrun-flokkanna og algjörlega misst sig í samræðustjórnmálum.

Á þeirri leið hafa skoðanir margar þróast og snúist, álitgjafar hafa verið kallaðir til og sitt sýnist hverjum.

Nú erum við komin á þann stað að niðurstaða verður að fást í samræðustjórnmálin og hún skal fengin með meiri samræðum, en ekki skipun frá höfðingjanum. Þar liggur kannski aðalvandinn

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.1.2010 kl. 16:23

6 identicon

Egill.

Þú setur hér þína skoðun á ákveðnu máli, og er það gott mál.

Síðan skrifa hér nokkrir aðilar þar á eftir,  einn dettur í pittinn sem þras atvinnuskítadreyfara fjórflokksins  samastendur af.

Ég man ekki eftir öðru en þessi fulltrúi framsóknaflokksins þurfi að skilja skítin eftir sig og tilefnið er auðvitað að reyna gera umræðuna marklausa.

JR (IP-tala skráð) 17.1.2010 kl. 20:25

7 Smámynd: Egill Jóhannsson

Örn. Grundvallarhugsun fjórflokksins er því miður sú sama þ.e. að halda völdum með því að hygla sérhagsmunum á kostnað almannahagsmuna. Það er grundvallarvandamálið við stjórnskipulagið okkar og er grundvallarástæða þess að við erum í þeirri klípu sem við erum.

Hólmfríður: Greinin hans Hallgríms fjallar nákvæmlega um það sem löngu er vitað og þúsundir greina hafa verið skrifaðar um.

Icesave var sett í rangan farveg vegna flokkspólitískra sérhagsmuna sem leiddi málið í öngstræti og gerði sífellt stærri hluta almennings fráhverfan málinu þangað til upp úr sauð á gamlársdag. Þá þjappaði þ jóðin sér saman, skrifaði undir áskorun til forseta og sagði hingað og ekki lengra við fjórflokkinn. Þjóðin tók völdin sem hún reyndar hefur og hefur nýtt sér allt of sjaldan vegna þess að fjórflokkurinn hefur skapað kerfi sem útilokar þjóðina frá ákvörðunum í stórum málum.

Í stað þess að setja málið í samráðsfarveg strax frá upphafi þá var farin leyndar og pukurleiðin sem leiddi til þeirra örþrifaráð sem þjóðin greip til. Stjórnmálamenn fjórflokksins voru ekki vandanum vaxnir.

Ég veit ekki hvað þú meinar með að það hafi verið mistök hjá ríkisstjórninni að heimila "spuna" stjórnarandstöðunnar. Ertu að meina að ríkisstjórnin hefði átt að beita ritskoðun? Hvað varð um óskina um samræðuna? Er það kannski eins með þá ósk eins og óskina um þjóðaratkvæðagreiðslu? Hún er ekki eins spennandi þegar menn eru við völd?

Egill Jóhannsson, 17.1.2010 kl. 21:26

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Jamm, spuni og ekki spuni - sumir tala einnig um að deila og drottna - síðan heyrir maður líka tal um að hreinsa upp skít - laga til - að láta beri þá vera sem séu að lagfæra hlutina - treystið okkur - o.s.frv.

Tek allavegna undir, að þ.e. mikið um spuna og það sannarlega er einhver, sem er í því að deila og drottna, beitir aðferðum spunameistara og atvinnurógbera.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.1.2010 kl. 21:39

9 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég varpaði fram spurningunni hvort það hefðu verið mistök að leyfa allan þennan spuna. Ég tel mig hafa svarað henni á þann veg að svo hafi ekki verið þar sem samræðustjórnmál séu stíll sem félagshyggjufólk velji og því hafi það verið rétt að leyfa allann spunann, málþófið og hvað við köllum endurteknar ræður.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.1.2010 kl. 00:49

10 Smámynd: Egill Jóhannsson

Hólmfríður:

Ég er í raun að gera athugasemd hjá þér við orðið "leyfa" í þessu því það er ekki og á ekki að vera í valdi eins né neins að leyfa eða leyfa ekki umræðu, hvort sem menn kjósa að kalla hana spuna eða eitthvað annað.

Egill Jóhannsson, 18.1.2010 kl. 00:53

11 identicon

Eitthvað desja vú líkt fyrirbrigði á holodekkinu.

Alexander (IP-tala skráð) 18.1.2010 kl. 01:19

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Greinin var grautur orðflúrs og sniðuglegheita og innihaldslítið málæði.  Boðskapinn má finna í ítilli klausu undir lokin, þar sem hann telur að við komumst ekki hjá því að borga, en að við gætum samið um betri kjör. Ergo: Ábyrgðina skal setja á almúgann. Hann leiðir það hjá sér að tal um þessa ábyrgð er annað hvort eða ekkert smá eða soldið. 

Hann hvarf algerlega út af mínu korti við þessi skrif.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.1.2010 kl. 05:07

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann stendur enn undir nafni sem Bónusskáldið.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.1.2010 kl. 05:22

14 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Góð færsla hjá þér Egill.

Það var eftirtektarvert í Silfrinu hvað Hallgrími leið illa þegar hann rifjaði upp greinina sína. Einhvern veginn var ekki þetta planið hjá ríkisstjórninni þegar lagt var í hann og Icesave er dæmi um vanmat á raunveruleikanaum.

Gunnar Skúli Ármannsson, 18.1.2010 kl. 09:05

15 identicon

Var ekki Andri Snær Bónusskáldið (vísa í athugasemd nr. 13)? Andri Snær samdi ljóðabók sem kennd var við Bónus og seld þar.

Annars skemmtileg félagsleg pæling hjá þér, Egill 

Eva Sól (IP-tala skráð) 18.1.2010 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband