Icesave III: Krafan verður að annaðhvort verður nýr samningur samþykktur 63-0 á Alþingi eða ný þjóðaratkvæðagreiðsla. Mikilvægt að þessum skilaboðum verði komið á skýran hátt til Breta, Hollendinga og ESB sem hingað til hefur hlaupist undan ábyrgð á málinu.
Þjóðin þarf að gera þessa kröfu mjög ákveðið og það væru skilaboð til umheimsins en ekki síður til fjórflokksins.
|
Fögnuður Íslendinga á BBC |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Vangaveltur er ágætis hugarleikfimi. Bloggið er eitt tækifæri til að deila skoðunum með öðrum. Ég hef sérstakan áhuga á því sem snýst hægt. Og snúa því í gang. Stjórnun breytinga. En bílar, nýsköpun, viðskipti, stjórnun, efnahagsmál, fjallgöngur og heimspekileg málefni allskonar eru í uppáhaldi. Athugasemdir og leiðbeiningar frá öðrum bloggurum eru mjög vel þegnar.
Eldri færslur
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 429910
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Snjalli Egill !
Svo mikið er öruggt að stjórnarforystan hefur alvarlega " tapað áttum " !
Heyrðirðu hvað Steingrímur sagði við fjölmiðlamenn kl. 22.10 í gærkveldi ?
Jú, hann sagði orðrétt.:
"MERKILEGT HVAÐ MARGIR SÖGÐU " JÁ" !!!!!
Voru það 1,2% eða kannski var það 1,3% sem sögðu " já" !!!
Ísland á ekki skilið þetta " lið" við stjórnvölin. Okkur er þörf fólks sem vill, þorir - og getur !
Jalli Sveinss (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 11:32
nákvæmlega rétt Egill; "þjóðinn" þarf að gera kröfu !
Jón Snæbjörnsson, 7.3.2010 kl. 11:33
Hvað ef Bretar og Hollendingar segja núna:
Þjóðin vill fá að halda í samninginn eins og Alþingið samþykkti í sumar og ganga að þeim lögum, óháð betri tilboðum?
Hvað ef Bretar og Hollendingar bakka og segja, "við gefum okkur, lítum á málið leyst. Engir frekari samningar"?
Hvað þá?
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 11:48
Þar hittirðu naglann á höfuðið eins og svo oft áður.
Þetta er lágmarkskrafa um framhaldið.
Carl Jóhann Granz, 7.3.2010 kl. 11:49
Sammála, en ríkisstjórnin skilur enga breytingu og telur að þjóðaratkvæðagreiðslan sé marklaus.
Sigurður Þórðarson, 7.3.2010 kl. 11:56
Carlos:
Samkvæmt þeim hlutlausu kynningargögnum sem send voru á öll heimili í landinu kemur fram á baksíðu eftirfarandi texti.
"Lög númer 96/2009 gilda óbreytt en ábyrgð íslenska ríkisins samkvæmt þeim er ekki í fullu samræmi við Icesave-samningana".
"Icesave-samningarnir frá júní og október 2009 gætu að öllu óbreyttu ekki tekið gildi".
Þannig að svarið til þín er: Að öllu óbreyttu eru engir samningar í gildi núna en í versta falli myndum við auðvitað standa við skuldbindingar okkar og virða þá samninga þ.e. Icesave I og þá gilda auðvitað þeir fyrirvarar sem þar voru settir. Það er þá upp á Hollendinga og Breta að staðfesta að þeir séu sáttir við þá.
Egill Jóhannsson, 7.3.2010 kl. 12:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.