Fjórflokkshugtakið. Markmiði náð

Það er mjög ánægjulegt að upplifa almenna notkun fjölmiðlamanna og jafnvel forystumanna stjórnmálaflokkanna á hugtakinu fjórflokkur og viðurkenningu þeirra á að fjórflokkurinn hafi orðið fyrir höggi. Hámarki náði notkun hugtaksins á kosningakvöldinu og daginn eftir.

Það hefur verið eitt af baráttumálunum frá Hruni að hamra stöðugt á hugtakinu á öllum mögulegum og ómögulegum vígstöðvum. Markmiðinu hefur verið náð.

Sumir fjórflokksforystumenn hafa barist hatrammlega gegn hugtakinu af augljósum ástæðum því það súrrar samtryggingarflokkunun saman í einn graut og máir út sérkenni þeirra. Það er vont fyrir þá í kosningum en það er því miður raunveruleikinn gagnvart almenningi.

Hugtakið fjórflokkurinn lýsir viðhorfi kjósenda til samtryggingarinnar og það hvernig hinir fjórir armar fjórflokksins standa sem einn maður þegar kemur að því verja ríkisstyrktan fjáraustur í flokkanna, ónýtt kjördæma- og kosningakerfi, úrelta stjórnarskrá, ógagnsæi og sandkassaleik.

Lausnin fyrir hvern og einn arm fjórflokksins til að aðgreina sig frá hinum er að hlusta á lýðinn og sýna kjark og áræði. Lausnin er í höndum þeirra sjálfra.


mbl.is „Pólitískur landskjálfti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki auðvelt að hlusta á lýðinn þegar einn daginn segir hann eitt og næsta eitthvað annað. Ég held að lýðurinn hafi sjaldan skipt eins hratt um skoðanir í íslenskri pólitík eins og nú um stundir. Fyrst vildi fólk ganga í ESB, nú vill það alls ekki. Fyrst voru útrásargaurarnir hetjur, nú eru þeir kannski mest hötuðu persónur landsins (og það réttilega). Þá var talið að menn eins og Gylfi Magnússon væru að bulla fyrir hrun, síðan eftir hrun varð hann einhvers konar hetja, og síðan nú er hann aftur hataður fyrir að vera fylgjandi samþykkt Icesave. Svona má halda áfram um fleiri mál, t.d. AGS, Evru, Davíð Oddson, o.s.frv. Ég held að fáir stjórnmálaflokkar geti verið í sambandi við landsmenn í svona ástandi. Því miður þá spái ég svipuðu fyrir Besta flokkinn. Ef þetta ástand heldur svona áfram þá verður hann fljótlega versti flokkurinn og Jón Gnarr hættir að vera fyndinn.

Bjarni (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 07:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband