Samræmd efnahagsstjórn mikilvæg

Íslendingum hefur verið tíðrætt í gegnum tíðina um mikilvægi aga í hagstjórninni en lítið farið fyrir efndum í þeim efnum.

Umræðan hefur gerst háværari eftir hrun enda nokkuð augljóst að efnahagsstjórnin var ekki eins og best var á kosið.

Meðan seðlabankinn barðist við þennslubálið, hækkaði vexti og styrkti þannig gengið vegna frjálsa fjármagnsflæðisins og jók þannig þennslu (já, þetta var peningastefnan í hnotskurn) þá bætti ríkið eldsneyti á bálið með því að auka útgjöld og lækka skatta (já, þetta var hagstjórnin í hnotskurn).

Snilld okkar er viðbrugðið.

Nú leggur Steingrímur J. til að efnahagsstjórnin verði samræmd undir einu ráðuneyti í stað þriggja (forsætis, fjármála- og efnahags) eins og fyriromulagið hefur verið. Þessi tillaga Steingríms hljómar skynsamlega séð frá samfélagslegu sjónarhorni.

Í raun snýst þetta um að ábyrgð peninga- og efnahagsmála sé á einum stað.


mbl.is Stefnir í fjárlög með 20,7 milljarða halla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Við erum á réttri leið en betur má ef duga skal. Verður ekki að auka tekjur og halda sem mest aftur af útgjöldum?

Guðjón Sigþór Jensson, 6.12.2011 kl. 07:43

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Öll verslun er nú að færast úr landi en ég held að nái Steingrímur að komast að þessum kjötkötlum þá verður úr þessu; samræmd efnahagsstjórn forn með tilheyrandi klíkukerfi og hverfandi borgararéttindum. Guðjón, við erum ekki á réttri leið fyrr en við göngum í ESB. Óttast mest að okkur verði meinaður aðgangur og þá er öll von úti.

Einar Guðjónsson, 6.12.2011 kl. 10:56

3 identicon

Fjármálaráðuneytið á að sjá um ríkisfjármálin. Efnahagsráðuneytið á að sjá um þá þætti sem snerta fjármálakerfið og hið almenna viðskiptalíf. Það er alls ekki skynsamlegt að blanda þessu saman. Hætta er á að sjónarmið og hagsmunir ríkissjóðs taka algjörlega yfirhöndina.  Það er reyndar raunin núna en yrði enn verra.

Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 6.12.2011 kl. 13:36

4 identicon

Steingrímur sagði að öll efnahagsstjórn ætti að vera" á einni hendi" - sinni eigin. Ég hætti að kaupa af þér bíla Egill ef þú óskar okkar Íslendingum þess alræðis hins afar mistæka Steingríms. Og þú ert líka í vitleysu ef þú heldur að þrjú ráðuneyti séu með þetta nú: Efnahagsráðuneytið var stofnað gagngert til að koma á fót samræmdri efnahagsstjórn í stað keppni fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis og forsætisráðuneytis. Steingrímur þolir ekki ráðuneytið sem hann stofnaði sjálfur að tillögu erlendra sérfræðinga vegna hrunsins - hann vill ráða öllu og er byrjaður að hugsa til kosninga.

Sigurður (IP-tala skráð) 6.12.2011 kl. 16:11

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

@ Einar Guðjónsson.

Þú þarft ekkert að óttast því að það verður þjóðin sjálf sem meinar því að við gerumst nokkurn tíman aðilar að skulda- og kreppubandalaginu ESB og tökum síðan upp hættulegasta skuldavafning heims þ.e. Evruna !

Gunnlaugur I., 6.12.2011 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband