Ég hef fjallað um hér á blogginu að gagnsæisbyltingar sé þörf á Íslandi og nefndi þetta aftur í Silfri Egils í gær, sunnudag.
Nýr hugsunarháttur er nauðsynlegur og þar verða stjórnvöld og stofnanir stjórnmála, viðskiptalífs og verkalýðsfélaga ásamt lífeyrissjóðum að stíga fyrstu skrefin. Eftir höfðinu dansa limirnir.
Það er komið nóg af orðum. Nú vantar að fylgja þeim eftir með verkum. Hjálmar Gíslason hefur einnig skrifað mikið um þetta og talar um vægðarlaust gagnsæi. Ég mæli með hans bloggfærslu um þetta mál en þar segir m.a.
Í ríkjandi kerfi er litið svo á að öll gögn séu trúnaðarmál nema sérstök ástæða sé til að opna þau. Þessum hugsanahætti þarf að snúa við. Gögn opinberra aðila eiga hér eftir að vera opin nema sérstök ástæða sé til að vefja þau trúnaði.
|
Krefur viðskiptaráðherra um svör |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bloggar | Mánudagur, 21. september 2009 (breytt kl. 13:47) | Facebook
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Eldri færslur
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 429910
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Ætti enda ekki að vera umræðu þarft.
Steingrímur Helgason, 21.9.2009 kl. 22:58
Ég er einn af þeim sem eru sannfærðir um að gagnsæi sé forsenda breyttra hugsunarhátta á Íslandi.
Umræðan um þetta er því miður ekki sérlega hávær. Kannski vegna þess að fólk áttar sig ekki á því hvað sé fengið með þessu, hvað þurfi til og hvernig framkvæmdin geti verið. Sjálfur hef ég bara óljósar hugmyndir um þetta.
Hvað með að taka dæmi úr stjórnsýslunni og viðskiptalífinu, nefna tiltekin gögn og fjalla um hvað sé fengið með því að þau séu opin. Kannski að umræðan aukist við það.
Það er einnig spurning hvort ekki þurfi að benda fólki á góð dæmi um þetta erlendis frá. Mér var t.d. nýlega bent á vefinn www.proff.no. Við stutta skoðun virðist mér hann vera magnaður.
Dæmi um síður:
http://www.proff.no/proff/search/companyDetails.c?freeText=Olav+Thon+&bc=15975&c=Z0HQ0L37&org=938050287
http://www.proff.no/proff/search/roleDetails.c?freeText=Olav+Thon&id=354214
Ég velti fyrir mér hvort hægt væri að gera gott "screen grab"-vídeó af nokkrum slíkum vefjum, þar sem fagmaður mundi útskýra á íslensku hvað við værum að sjá. Ef hægt væri að koma slíku myndbandi að á vinsælum miðli þá er ég vongóður um að hægt væri að koma umræðunni um gagnsæi af stað fyrir alvöru.
Helgi Borg (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 23:05
Umræðan er gríðarlega mikilvæg því gagnsæið er alger forsend þess að eitthvað breytist. En krafa um gagnsæi er ekki einföld og mun taka tíma að innleiða. Því passar hún ekkert sérlega vel við okkar þjóðarsál sem hefur oft ekki tíma til að grafa djúpt heldur leitar skyndilausna.
En það má ekki gefast upp og þarf að leita allra leiða til að fá fólk til að átta sig á mikilvægi gagnsæis. Að finna dæmi erlendis frá er ein mikilvæg leið.
Egill Jóhannsson, 23.9.2009 kl. 01:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.